Sælir kæru ÍR-ingar - velkomin í bikarhelgina okkar.
Við áttum stórkostlega "Final Four" bikarhelgi á síðasta ári þegar við lönduðum bikarnum. Þá var Höllin máluð blá að okkar hætti og stuðningurinn var frábær á báðum leikjum okkar enda slógum við aðsóknarmetið þá helgi.
Nú ætlum við að endurtaka leikinn frá því í fyrra og taka þessa bikarhelgi með trompi, því með ykkar stuðningi í stúkunni er fátt sem stöðvar okkur ÍR-inga.
Við mætum mjög góðu liði Aftureldingar í undanúrslitunum á föstudeginum 28. Feb. kl. 17:15. Afturelding hefur ekki tapað leik á þessu tímabili og eru strákarnir þar búnir að slá út tvö úrvalsdeildarlið á leið sinni í Final Four. Þeir eru því sýnd veiði en ekki gefin, enda er mjög mikilvægt að fjölmenna á leikinn í ÍR-litunum og styðja okkur strákana í að komast í gegnum hann og alla leið í úrslitaleikinn, sem verður síðan á laugardaginn kl. 16:00 gegn FH eða Haukum.
Undirbúningur hefur gengið vel í okkar herbúðum og höfum við farið vel yfir það á video fundum hvernig andstæðingar okkar spila. Okkar plan liggur því ljóst fyrir enda eru leikmenn og skipulagið klárt.
Strákarnir okkar mæta því fullir sjálfstrausts og tilhlökkunar í þessi verkefni sem býða okkar núna um helgina, og með ykkar stuðning og stemningu förum við alla leið og höldum bikarnum okkar í Breiðholti þar sem hann á heima.
Það er síðan okkar von að ÍR Handbolti landi tveimur bikarmeisturum þessa helgi því Elli Ísfeld og strákarnir í 4.fl. ka.E hafa einnig tryggt sig inn í úrslitaleikinn í bikarnum og spila þeir við ÍBV kl. 14:30 á sunnudeginum í Höllinni.
Við óskum þeim góðs gengis og vitum að ÍR-ingar fjölmenna til að styðja þá líka.
Sjáumst í Höllinni
Áfram ÍR !!
Kv.
Bjarki Sig.
Bjarki Sig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli