sunnudagur, 26. febrúar 2012

3. flokkur kvenna verður starfræktur haustið 2012

3. flokkur kvenna verður starfræktur næsta haust þegar 4. flokks stelpurnar í árgangi '96 flytjast upp um flokk. Vonandi að sem flestar stelpur í árgöngum '95 og '94 verði með.
Stelpurnar í 4. flokk janúar 2012

laugardagur, 25. febrúar 2012

ÞIÐ GETIÐ STÓRAUKIÐ TEKJUR ÍR HANDBOLTANS


Foreldrar, iðkendur og aðrir ÍRingar!
Nú er BOGUR að fara af stað með sölu á auglýsingum inn á breyttum bloggsíðum ÍR Handboltans. Allar tekjur munu renna óskiptar í handboltastarfið. Vefstjórar gefa alla sína vinnu og þið eruð ekki síður mikilvæg þar sem umferð/heimsóknir á síðunum skipta höfuðmáli fyrir sölu á auglýsingum á netinu.

Þetta getur þú gert til að auka umferðina á ÍR handboltabloggsíðunum.
Munið að þegar þið fáið sjálfvirkan netpóst frá bloggsíðunum með tilkynningu eða frétt sem þið klikkið á, þá eruð þið að auka væntanlegar auglýsingatekjur ÍR Handboltans.
Vertu vinur okkar á Facebook, klikkaðu hér--->  og LIKE!

ÍR kveðjur frá Netstjórum (BOGUR)

mánudagur, 19. september 2011

Vertu vinur okkar - Nýtt Vefsvæði ÍR Handbolta á Facebook

Komdu og vertu vinur okkar á Facebook, sjáðu myndir, fáðu fréttir og svo margt meira skemmtilegt sem viðkemur handboltanum hjá ÍR.


Fara á nýja síðu með því að smella á mynd hér að ofan eða hlekk hér að neðan og "Like"

http://www.facebook.com/ÍR_Handbolti

Verið vinir okkar á þessu nýja svæði sem mun verða aðalsvæðið fyrir ÍR handboltan á Facebook.

ATH. Þetta þýðir einnig að allir núverandi vinir á gamla svæðinu þurfa að færa sig yfir á þetta nýja svæði ef þeir vilja halda áfram að fá fréttir frá okkur.

miðvikudagur, 14. september 2011

mánudagur, 5. september 2011

Æfingatafla 2011 - 2012

Náið í æfingatöflu fyrir tímabilið 2011-2012 hér að neðan þar sem koma fram tímar og nánari upplýsingar.
 
Félagið er einnig að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og þurfa nú allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu þar sem skráning fer ekki lengur í gegnum þjálfara.

Hér er slóðin inn á skráningarvefinn https://ir.felog.is/ og meðfylgjandi pdf skjal eru leiðbeiningar (smellið HÉR til að nálgast skjalið).

Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að  geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef greiða þarf með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl.10:00-16:00.   
 

 
 

Æfingatöflur eru einnig birtar á heimasíðunni hjá ÍR og á bloggsíðum flokkanna undir "Æfingar og Mót".

föstudagur, 26. ágúst 2011

Æfingatafla-Æfingatímar í vinnslu!


Æfingataflan þar sem flokkunum er raðað niður á íþróttahúsin er en í vinnslu! Þessi vinna hefur tekið lengri tíma en oft áður þar sem ÍR er ekki að fá þá tíma sem félagið telur sig þurfa í húsunum. Beðist er velvirðingar á þessu.

Kveðja, stjórn og unglingaráð handknattleiksdeildar.

föstudagur, 12. ágúst 2011

Nýtt æfingatímabil 2011-2012

Stefnt er að því að æfingar byrji samhliða skólunum eða fyrr. Ekki er hægt að ákveða æfingatíma í íþróttahúsunum fyrr en skólarnir eru búnir að fastsetja sína tíma, sem verður í næstu viku. Þá verður hægt að nálgast upplýsingar um æfingatíma og mót á undirsíðunni "Æfingar og Mót" hér til hægri.

Kveðja barna og unglingaráð (BOGUR)